Klausturkaffi

  • Hengifoss Klausturkaffi Service 01

  • Hengifoss Klausturkaffi Outdoor 01

  • Hengifoss Klausturkaffi Buffet 03

  • Hengifoss Klausturkaffi Indoor Terrace 01

  • Hengifoss Klausturkaffi Lunch Buffet 04

  • Hengifoss Klausturkaffi Lunch Buffet 05

  • Hengifoss Klausturkaffi Outdoor 04

  • Hengifoss Klausturkaffi Skyr Cake

Um okkur

Klausturkaffi er veitingastaður í Gunnarshúsi á Skriðuklaustri í Fljótsdal, 39 km frá Egilsstöðum. Klausturkaffi leggur áherslu á íslenska matargerð og notkun á hráefni af svæðinu s.s. lambakjöt, hreindýrakjöt, hrútaber og lerkisveppi. Allar kökur og allt brauð er heimabakað. Boðið er upp á hádegis- og kaffihlaðborð alla daga auk lítils matseðils. Einungis er opið fyrir hópa í kvöldverð eða þegar sérstakir viðburðir eru í húsinu.

Veitingastaðurinn rúmar um 50 manns í sæti en að sumri er einnig hægt að sitja úti á verönd. Yfir veturinn er opið kringum viðburði og hægt að fylgjast með því á heimasíðunni þar sem einnig er að finna matseðla. Hópar alltaf velkomnir í fjölbreyttar veitingar eftir samkomulagi.

Klausturkaffi
+(354) 471 2992
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
www.skriduklaustur.is

Opnunartími
Apríl & Okt, 12:00 - 16:00
Júní - Ágúst, 10:00 - 18:00
Maí & Sept, 11:00 - 17:00



© 2019 / Ferðaklasi Upphéraðs

For more information on Austurland: