Hallormsstaðaskógur er talinn stærstur skóga á Íslandi, um 740 ha. Hann er að mestu náttúrulegur birkiskógur en gerðar hafa verið tilraunir með innfluttar trjátegundir allt frá 1905.
Skógurinn er vinsælt útivistarsvæði í fjölbreyttu landslagi. Í honum eru 11 merktar gönguleiðir. Gönguleiðakort er í kassa við upphaf allra gönguleiða, auk þess má nálgast kortið á Hótel Hallormsstað. Í skóginum er trjásafn með yfir 80 trjátegundum.
Kringum sumarsólstöður ár hvert (21. júní) er haldinn í skóginum Skógardagurinn mikli þar sem m.a. er keppt um Íslandsmeistaratitil í skógarhöggi.
Tjaldsvæði
Í Atlavík eru tvö salernishús með heitu og köldu rennandi vatni. Þar eru aðstaða fyrir uppvask, losun ferðasalerna, salerni fyrir fatlaði, útigrill, borð og stólar ásamt leikvelli.
Í Höfðavík eru svo þrjú salernishús með sturtu. Einnig er þar rafmagn fyrir húsbíla og vagna, losun ferðasalerna, útigrill ásamt borðum og stólum. Í Höðavík æslabelgur / hoppudýna.
Á báðum tjaldsvæðum er rusl flokkað.
Hallormsstaðaskógur er mjög vinsæll fyrir útivist enda fallegur staður. Það eru yfir 40 km af gönguleiðum á korti. Í skóginum er fjölskylduvænt Trjásafn með yfir 90 mismunandi gerðir trjáa. Þar er einnig Hótel Hallormsstaður með 100 herbergi og veitingastað.
Verð 2020
Fullorðnir: 1.800 kr á manninn
Eldri borgarar og öryrkjar: 1.300 kr
Börn: Frítt fyrir 14 ára og yngri
Rafmagn/sólahringur: 1100 kr
Sturta: 500 kr. Sjálfsalinn tekur aðeins við 100 kr mynt. Eru staðsettar í Höfðavík
Þvottavélar og þurrkarar.: 500 kr eru staðsettar í Atlavík
Eftir 4 nætur er veitt afsláttarkort sem veitir 500 kr afslátt af gistinótt af fullur verði út sumarið. Afláttarkortið gildir einnig í Vaglaskógi.